Fjögurra bíla árekstur

Fjórir bílar lentu í árekstri á Miklubraut í dag.
Fjórir bílar lentu í árekstri á Miklubraut í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjögurra bifreiða árekstur varð á Miklubrautinni á þriðja tímanum í dag. Lögregla var kölluð á vettvang en samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá slökkviliðinu í Reykjavík urðu ekki slys á fólki.

Ekki var talin þörf á að slökkviliðið færi á vettvang en sjúkrabíll var sendur á staðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert