SA og ASÍ semja um lífeyrismál

ASÍ og SA hafa komist að samkomulagi um breytingar á …
ASÍ og SA hafa komist að samkomulagi um breytingar á kjarasamningi um lífeyrismál. Samsett mynd

Samtök atvinnulífsins  og Alþýðusamband Íslands hafa náð saman um breytingar á kjarasamningi um lífeyrismál. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Kjarasamningur SA og ASÍ um lífeyrismál er stofnskjal og bakhjarl lífeyrissjóða á almennum vinnumarkaði. 

„Breytingarnar felast í umgjörð fyrir hugsanlega afturköllun tilnefningaraðila á umboði stjórnarmanna, auk skerpingar ákvæða um sjálfstæði stjórnarmanna í lífeyrissjóðum,“ segir í tilkynningunni.

Nýtt ákvæði þar sem sjálfstæði stjórnarmanna er áréttað hljóðar svona:

Stjórnarmenn skulu rækja skyldur sínar af heilindum, hafa möguleika á að verja þeim tíma til stjórnarstarfa sem slík seta krefst og taka sjálfstæðar ákvarðanir í hverju máli fyrir sig.

Tvö ákvæði um hugsanlega afturköllun tilnefningaraðila á umboði stjórnarmanna bætast við samninginn og varða formlegt ferli og aðkomu fulltrúaráðs lífeyrissjóða að þeirri ákvörðun:

Tilnefningaraðila er heimilt að afturkalla umboð stjórnarmanns á grundvelli laga og samþykkta lífeyrissjóðs. Tilkynna skuli stjórn sjóðsins með formlegum hætti rökstudda ákvörðun með tilvísun í viðeigandi lagaákvæði, samþykktir og reglur.

Afturkalli tilnefningaraðili umboð stjórnarmanns skal fulltrúaráð staðfesta þá ákvörðun ásamt tilnefningu nýs stjórnarmanns fram að næsta ársfundi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert