Ekki útilokað að flæði yfir Suðurstrandarveg

Fagradalsfjall á Reykjanesi er talinn líklegasti eldsuppkomustaðurinn ef af gosi …
Fagradalsfjall á Reykjanesi er talinn líklegasti eldsuppkomustaðurinn ef af gosi verður á Reykjanesskaga. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samkvæmt nýrri sviðsmynd eldfjallafræði- og náttúruvárhóps Háskóla Íslands mun hraun ekki fara yfir Reykjanesbraut ef til eldgoss kemur við Fagradalsfjall, en ekki er útilokað að það nái niður á Suðurstrandarveg.

Vísindamenn háskólans reikna út líklegar rennslisleiðir hrauns út frá ýmsum þáttum. Ljóst er að það veltur á framleiðni gossins hve langt hraunið nær frá gosstað. Nýjasta kortið má sjá hér að neðan, þar sem sést að ólíklegasta rennslissvæðið nær alveg suður að Suðurstrandarvegi.

Líklegt hraunflæði.
Líklegt hraunflæði. Mynd/Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands

Einnig eru metnar líkur á því hvar nákvæmlega gosið kemur upp, þ.e. óháð því hvert það síðan flæðir. Hér hefur orðið breyting á spám, því nú er talið að það muni alfarið koma upp við Fagradalsfjall og hefur áætlað gossvæði því færst töluvert í suðvestur frá því sem áður var, þegar talið var að það yrði nær Keili.

Myndin hér að neðan sýnir vel að mögulegt eldsuppkomusvæði er fjarri þéttbýli.

Líklegt eldsuppkomusvæði.
Líklegt eldsuppkomusvæði. Mynd/Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands

Í til­kynn­ingu frá Veður­stof­unni í morgun sagði að þótt skjálfta­virkn­in sé áfram mik­il hafi eng­inn órói mælst á svæðinu, en órói get­ur verið fyr­ir­boði eld­goss. Alls mæld­ust 2.800 jarðskjálft­ar á svæðinu í gær, og frá miðnætti hafa þeir verið fleiri en 700. Heild­ar­fjöldi skjálfta frá því hrin­an hófst fyr­ir tíu dög­um er 22.000.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert