Tvö smit utan sóttkvíar – með breska afbrigðið

Smitrakningarteymi Almannavarna og sóttvarnalæknis hefur unnið að rakningu og boðað …
Smitrakningarteymi Almannavarna og sóttvarnalæknis hefur unnið að rakningu og boðað fólk í skimun í tengslum við þessi tvö smit sem greindust utan sóttkvíar.

Síðustu daga hafa tveir einstaklingar greinst innanlands með Covid-19 utan sóttkvíar. Báðir tengjast óbeint einstaklingi sem kom frá útlöndum og greindist í seinni skimun 4. mars.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra og sóttvarnalækni.

Smitrakningarteymi almannavarna og sóttvarnalæknis hefur unnið að rakningu og boðað fólk í skimun í tengslum við þessi tvö smit sem greindust utan sóttkvíar. Búið er að raðgreina upprunalega smitið og eitt afleitt smit og bæði reyndust með hið svokallaða breska afbrigði. Íslensk erfðagreining vinnur nú að raðgreiningu fleiri sýna. Líklega munu nokkrir tugir manna þurfa að fara í sóttkví vegna ofangreindra smita.

Eitt af þessum smitum tengist dag- og göngudeild Landspítala og er smitrakning og sýnataka í gangi þar. Hluta deildarinnar hefur verið lokað en að öðru leyti er ekki gert ráð fyrir að smitið muni hafa frekari áhrif á starfsemi spítalans, eins og staðan er. Ríflega þrjátíu einstaklingar, sjúklingar og starfsmenn eru komnir í sóttkví í tengslum við smitið.

Smitrakning nær til tónleika í Hörpu

Smitrakning nær einnig til tónleika í Hörpu 5. mars sem hófust klukkan 20 en þar eru einstaklingar skráðir í sæti sem auðveldar smitrakningu. Um tíu þeirra sem næst sátu einstaklingnum eru komnir í sóttkví.

Á morgun, mánudag 8. mars, er fyrirhuguð skimun á öllum tónleikagestum. Þeir sem ætla að mæta í skimun í tengslum við tónleikana verða að bóka tíma í gegnum Mínar síður á Heilsuvera.is og velja þar „Tónleikagestur í Hörpu 5. mars 2021.“ Þeir sem skrá sig fá sent strikamerki og tímasetningu fyrir skimun. Allir tónleikagestir eru eindregið hvattir til að mæta í skimun og jafnframt að huga vel að persónulegum smitvörnum og að takmarka samskipti við aðra þangað til niðurstaða úr skimun liggur fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert