Lögreglan með viðbúnað við Hrísateig

Lögreglan var með talsverðan viðbúnað við Hrísateig núna fyrir hádegi í aðgerðum sínum. Lögreglubílar, bæði merktir og ómerktir, auk sjúkrabíls voru á staðnum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var ekki um aðgerðir almennrar deildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að ræða, en samkvæmt myndum sem mbl.is hefur séð var meðal annars sérsveit ríkislögreglustjóra á staðnum.

Ekki hefur tekist að fá staðfest frá lögreglu hvað hafi átt sér stað eða hvort einhver hafi verið handtekinn í aðgerðunum.

Skjáskot úr myndbandi af vettvangi.
Skjáskot úr myndbandi af vettvangi. Skjáskot
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert