Umferðarslys varð á Akranesi í dag þar sem 11 ára gamall drengur á reiðhjóli varð undir vörubifreið.
Lögreglan á Vesturlandi greinir frá þessu. Hún segir, að samkvæmt læknum sé drengurinn sem betur fer ekki mikið slasaður og ekki í lífshættu.
Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands. Rannsókn lögreglu á umferðarslysinu er í gangi.
Umferðarslys átti sér stað á Akranesi í dag þar sem 11 ára gamall drengur á reiðhjóli varð undir vörubifreið. Samkvæmt...
Posted by Lögreglan Vesturlandi on Þriðjudagur, 16. mars 2021