„Leist ekki alveg nógu vel á þetta“

Suðurstrandarvegur. Fylling utan á öxlum vegarins hefur sigið og sprunga …
Suðurstrandarvegur. Fylling utan á öxlum vegarins hefur sigið og sprunga myndast. Ljósmynd/Vegagerðin

Starfsmenn Vegagerðarinnar eru á leið að Suðurstrandarvegi til að loka veginum á milli Hrauns og Krýsuvíkurafleggjara, það er austan Grindavíkur.

„Þeir eru á leiðinni með lokunargrindur og verða þarna á staðnum um klukkan sex,“ segir Jóhann Bjarni Skúlason, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar í Hafnarfirði, í samtali við mbl.is.

Sig hefur orðið á veginum og verður honum lokað klukkan 18 síðdegis. Staðan verður metin að nýju klukkan átta í fyrramálið.

Sprungur hafa myndast í veginum eftir jarðskjálftana sem riðið hafa …
Sprungur hafa myndast í veginum eftir jarðskjálftana sem riðið hafa yfir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ekki góðar horfur

„Sérfræðingar Vegagerðarinnar komu þarna um miðjan dag í dag til að skoða veginn. Þetta eru ekki góðar horfur. Það er of mikið af sprungum í veginum, líka í vegrásinni og fyllingunni allri. Þeim leist ekki alveg nógu vel á þetta.“

Ljóst sé að töluvert þurfi að laga til að koma veginum aftur í fullkomið horf. Fyllingin undir veginn sé mjög há og ef losnar úr henni geti gat myndast inn í miðjan veg.

„Svo spáir rigningu ofan í þetta í nótt, þannig að við tókum þá ákvörðun að loka bara.“

Fyrr í dag var sagt frá því að nýj­ar mynd­ir sýndu fleiri mis­gengi sem hafa verið að hrökkva og skríða til. Nokk­ur þeirra eru í kring­um Grinda­vík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert