Loka Suðurstrandarvegi vegna sigs

Sprungur hafa myndast í veginum eftir jarðskjálfta.
Sprungur hafa myndast í veginum eftir jarðskjálfta. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ákveðið hefur verið að loka Suðurstrandarvegi fyrir umferð við Festarfjall, eftir að vart varð við að vegurinn hefði sigið.

Lokunin gildir frá Hrauni að Krýsuvíkurafleggjara og tekur gildi klukkan 18 í dag.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að staðan verði metin að nýju klukkan átta í fyrramálið.

Skemmdir í veginum komu í ljós í kjölfar stóra skjálftans sem reið yfir á sunnudag. Upptök hans voru talin vera beint undir veginum.

Fyrr í dag var sagt frá því að nýjar myndir sýndu fleiri mis­gengi sem hafa verið að hrökkva og skríða til. Nokk­ur þeirra eru í kring­um Grinda­vík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert