Vegagerðin vinnur að áætlun um viðgerð

Sprungur mynduðust vegna jarðskjálfta upp á 5,4 sem varð beint …
Sprungur mynduðust vegna jarðskjálfta upp á 5,4 sem varð beint und­ir Suðurstrandarvegi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Suðurstrandarvegur verður áfram opinn með takmörkunum þangað til búið er að bæta hann og styrkja þannig að hann sé fullkomlega öruggur. Einstefna er frá Grindavík að Ísólfsskála í austur og hraði tekinn niður í 50 km/klst. á þeim kafla.

Einstefna er frá Grindavík að Ísólfsskála í austur og hraði …
Einstefna er frá Grindavík að Ísólfsskála í austur og hraði tekinn niður í 50 km/klst. á þeim kafla. Kort/mbl.is

Tvístefna er um veginn að aust­an­verðu og verður í gildi áður en kem­ur að svæðinu þar sem veg­ur­inn hef­ur sprungið vegna jarðskjálfta upp á 5,4 sem varð beint und­ir hon­um.

Fram kemur í svari G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, að staðan sé sú að vegriðið á einbreiða kaflanum haldi ekki miklu. Af þeim sökum sé ekki hægt að hafa báðar akreinar opnar.

Vegagerðin vinnur að áætlun um viðgerðir á veginum en það mun taka einhvern tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert