Þorláksmessustemning við gossvæðið

Löng röð myndaðist á Suðurstrandarvegi í dag.
Löng röð myndaðist á Suðurstrandarvegi í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að loka fyrir bílaumferð að gosstöðvunum. Ökumenn sem eru vestan við Stafholt og austan við Ísólfsskála eiga ekki möguleika á að komast inn á svæðið. Margra kílómetra löng bílaröð myndaðist frá bíla­stæðum við Hraun, í gegn­um Grinda­vík­ur­bæ og í átt að af­leggj­ar­an­um við Bláa lónið síðdegis í dag. 

Fréttamaður mbl.is á svæðinu líkir örtröðinni við Kringluna eða miðbæinn á Þorláksmessu. Fólk hafi jafnvel tekið upp á því að ganga úr Grindavík að gosstöðvunum, sem er þónokkur spotti. 

Bogi Ad­olfs­son, formaður björg­un­ar­sveit­ar­inn­ar Þor­bjarn­ar, seg­ist hafa farið þess á leit við lög­reglu að gossvæðið verði ekki opnað aft­ur fyrr en í fyrra­málið.

mbl.is/Kristinn Magnússon

 

mbl.is/Jón Pétur
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert