Opna fyrir umferð að gosstöðvum í hádeginu á morgun

Aftur verður opnað fyrir umferð um Suðurstrandarveg að gosstöðvum í …
Aftur verður opnað fyrir umferð um Suðurstrandarveg að gosstöðvum í Geldingadal í hádeginu á morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ákveðið hefur verið að opna aftur fyrir umferð um Suðurstrandarveg að gosstöðvum í Geldingadölum á morgun, páskadag, 4. apríl kl. 12:00.

Vindátt fram að hádegi á morgun er ekki hagstæð með tilliti til gasmengunar en mun verða betri um hádegi, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Veðurspá Veðurstofunnar gerir ráð fyrir norðan- og norðaustanátt, frost 3 til 7 stig. Þeir sem hyggjast leggja leið sína að gosstöðvunum eftir hádegi á morgun ættu að huga vel að klæðnaði því að það verður kalt og vindkæling töluverð í ofanálag,“ segir í tilkynningunni.

Bent er á að umferð sem nauðsynlega þurfi að fara um Suðurstrandarveg muni geta farið fram hjá lokunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert