Sóttu slasaða konu í Karlsárdal

Frá aðgerðum björgunarsveitar í dag.
Frá aðgerðum björgunarsveitar í dag. Ljósmynd/Landsbjörg

Slösuð kona var sótt af björgunarsveit í Karlsárdal, norðan Dalvíkur, í dag. Útkall vegna konunnar barst björgunarsveit um klukkan tvö eftir að tilkynning barst Neyðarlínu. Flytja þurfti konuna um fjögurra kílómetra leið að bílastæði þar sem sjúkrabíll beið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.

„Björgunarsveitarfólk fór á vélsleðum á vettvang og hlúði að konunni sem var slösuð á fæti eftir að hún hafði dottið á skíðum. Hún var flutt á vélsleða að sjúkrabíl sem lagði af stað rétt í þessu með konuna til skoðunar á sjúkrastofnun.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert