Opnað fyrir umferð að gosstöðvum í fyrramálið

Björgunarsveitarmenn á gosstöðvunum.
Björgunarsveitarmenn á gosstöðvunum. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Opnað verður aftur fyrir umferð að gosstöðvunum klukkan sex í fyrramálið, miðvikudaginn 7. apríl.

Lokað verður fyrir alla umferð að gosstöðvunum kl. 18 eða fyrr ef nauðsyn krefur, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Viðbragðsaðilar munu hefja rýmingu á gossvæðunum kl. 22.

Þeir sem hyggjast fara að gosstöðvunum eru hvattir til að klæða sig eftir veðri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert