Rúmlega 62% vilja fólk í sóttvarnahótel

Fosshótel við Þórunnartún.
Fosshótel við Þórunnartún. mbl.is/Árni Sæberg

Rúmlega 62% landsmanna hefðu kosið að farþegum sem kæmu til landsins frá skilgreindum hááhættusvæðum yrði gert að vera í sóttkví undir eftirliti á sóttvarnahóteli, og gerð hefði verið breyting á sóttvarnalögum sem heimilaði slíka kvöð. 

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup.

Rúmlega 34% þeirra sem tóku afstöðu eru sátt við reglugerð heilbrigðisráðherra sem felur í sér að komufarþegar til Íslands sem eiga að fara í sóttkví geti verið í heimahúsi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. 

Tæp 4% hefðu kosið að komufarþegar til Íslands sem ættu að fara í sóttkví hefðu fengið að ráða hvar þeir væru í sóttkví án þess að reglur um heimasóttkví væru hertar.

Með nýjum reglum á landamærum sem tóku gildi 1. apríl síðastliðinn var farþegum sem komu til landsins frá skilgreindum hááhættusvæðum gert að dvelja í sóttkví undir eftirliti á sóttvarnahóteli. Eftir kærur frá farþegum kvað héraðsdómur hins vegar upp þann úrskurð að ekki væri lagaheimild fyrir reglunum.

Eftir að Landsréttur hafði vísað frá kæru sóttvarnarlæknis á úrskurði héraðsdóms tók ný reglugerð heilbrigðisráðherra gildi 9. apríl, en hún fól í sér að komufarþegar sem ættu að fara í sóttkví gætu verið í heimahúsi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Tæp 49% sjálfstæðismanna sátt við núverandi reglugerð

Ekki er marktækur munur á svörum fólks eftir kyni, aldri, búsetu, menntun eða tekjum en töluverður munur eftir því hvaða flokk það kysi til Alþingis ef kosið yrði í dag. Þeir sem kysu Sjálfstæðisflokkinn skera sig nokkuð úr. Tæplega 46% þeirra vilja að komufarþegum frá hááhættusvæðum yrði gert að vera í sóttkví á sóttvarnahóteli og lögum breytt til að heimila það, á meðan um 61-73% þeirra sem kysu aðra flokka vilja það.

Eins eru nær 49% sjálfstæðismanna sátt við reglugerð sem heimilar komufarþegum að vera í sóttkví í heimahúsi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum á meðan þeir sem kysu aðra flokka eru ólíklegri til að vera sáttir við hana. Tæplega 16% þeirra sem kysu Pírata eru sátt við reglugerðina og 24% þeirra sem kysu Framsóknarflokkinn, en um 30-38% þeirra sem kysu aðra flokka.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert