Býst við að tekin verði skýrsla af Sölva

Kristrún Elsa Harðardóttir, lögmaður kvennanna, hefur fengið boð í skýrslutöku …
Kristrún Elsa Harðardóttir, lögmaður kvennanna, hefur fengið boð í skýrslutöku ásamt skjólstæðingi sínum vegna meints kynferðisbrots af hendi Sölva Tryggvasonar. mbl.is/Eggert

Kristrún Elsa Harðardóttir, lögmaður tveggja kvenna sem sakað hafa fjölmiðlamanninn Sölva Tryggvason um ofbeldi, býst við því að tekin verði skýrsla af Sölva á næstu vikum í tengslum við annað málanna.

Kristrún og skjólstæðingur hennar hafa fengið boð í skýrslutöku hjá lögreglu vegna málsins, eftir að Kristrún lagði fram beiðni þess efnis til þess að leggja fram kæru.

Fer skýrslutakan fram á næstu vikum, að því er Kristrún tjáir mbl.is.

Kristrún Elsa Harðardóttir, lögmaður kvennanna.
Kristrún Elsa Harðardóttir, lögmaður kvennanna. Ljósmynd/Rósa Braga

Fleiri konur ekki leitað til Kristrúnar

Málið varðar konu sem kveðst hafa orðið fyrir kynferðisbroti af hálfu Sölva á heimili hans 22. júní í fyrra og kveðst loks nú hafa hugrekki til að kæra brotið til lögreglu, samkvæmt yfirlýsingu sem Kristrún sendi frá sér í síðustu viku.

Spurð hvort Sölvi verði yfirheyrður í kjölfar skýrslutöku af skjólstæðingnum segir hún:

„Lögreglan verður að svara fyrir það en það er nú yfirleitt þannig.“

Sölvi var þá einnig sakaður um líkamsárás í marsmánuði. Kristrún segir að það mál sé enn til rannsóknar hjá lögreglu en Kristrún er einnig lögmaður konunnar sem þar á í hlut.

Fleiri konur hafa ekki leitað til Kristrúnar með sambærileg mál á hendur Sölva.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert