Kærir sýknudóm Landsréttar til MDE

Maðurinn hefur kært dóm Landsréttar til Mannréttindadómstóls Evrópu. Blóðfaðir hans …
Maðurinn hefur kært dóm Landsréttar til Mannréttindadómstóls Evrópu. Blóðfaðir hans hafði verið dæmdur í sjö ára fangelsi í héraði en Landsréttur sneri dóminum við. Ljós­mynd/​ECHR

Fatlaður maður, sem staðið hefur í málarekstri gegn blóðföður sínum vegna kynferðisbrota sem hann varð fyrir á barnsaldri, undirbýr nú kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu. Ríkisútvarpið greinir frá.

Héraðsdómur hafði dæmt manninn í sjö ára fangelsi en Landsréttur sneri dóminum og sýknaði hann.

Brot á sjö ára tímabili

Í dómi Lands­rétt­ar kom fram að ekki hefði verið gætt að því við skýrslu­gjöf þoland­ans að hann gæfi sjálfstæða lýs­ingu á at­vik­um máls­ins. Á það að hafa tor­veld­að mögu­leika á að meta trú­verðug­leika framb­urðar hans.

Lögmaður mannsins segir Landsrétt hins vegar ekki hafa litið til fötlunar mannsins við mat á framburði hans. 

Kærði maðurinn föður sinn fyrir kynferðisbrot gegn sér á sjö ára tímabili, frá fjögurra ára aldri til ellefu ára. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert