Móðan sker sig úr öðru skýjafari með ákveðnum bláma

LANDSAT-8-gervitunglamynd (NASA & USGS)

Brennisteinsmóðan, sem fylgir eldgosinu í Geldingadal, sást vel á LANDSAT-8-gervitunglamynd (NASA & USGS) sem var tekin í gær. Móðan (SO2) sker sig úr öðru skýjafari með ákveðnum bláma. Það sérstæða við myndina er að skuggarnir af brennisteinsmóðunni skera sig einnig frá öðrum skuggum. 

Þetta kemur fram í færslu sem eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands birti í dag. 

Ljósmynd/Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur HÍ

„Skuggarnir eru gulir – og lesendur kannast örugglega við þennan gulleita blæ sem einkennir brennisteinsmóðuna. Móðan varpar sem sagt gulleitum skuggum á landið þegar sólin skín í gegnum hana. Meðfylgjandi er einnig ljósmynd, tekin „í hina áttina“ – þ.e. af jörðu í átt til sólar, sem sýnir þetta litaspil. Sem sagt, móðan síar bláa litinn úr sólarljósinu og þá verður gula ljósið eftir,“ segir í færslunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert