Tilboði tekið í Eiða

Samkvæmt auglýsingu er jörðin 768 hektarar að stærð og byggingar …
Samkvæmt auglýsingu er jörðin 768 hektarar að stærð og byggingar á henni 4707 fermetrar. Eru þar aðallega byggingar sem áður tilheyrðu Alþýðuskólanum á Eiðum svo sem íþróttahús, heimavistarhús, íbúðahús, kennslustofur og salir, segir í umfjöllun Austurfréttar. mbl.is/Steinunn

Landsbankinn hefur tekið tilboði í jörðina Eiða sem verið hefur til sölu frá því að bankinn eignaðist hana fyrir um einu og hálfu ári. Þetta staðfestir Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi bankans, í svari við fyrirspurn Austurfréttar. Ekki er búið að undirrita kaupsamning.

Fjallað er um málið á vef Austurfréttar, en þar segir að bankinn hafi tekið við eigninni í lok árs 2019 en áður hafði farið fram á uppboð á henni vegna skulda fyrrverandi eiganda, Sigurjóns Sighvatssonar. Hún var síðan auglýst til sölu í byrjun janúar 2002.

Síðan hafa komið fram nokkrar hugmyndir um nýtingu jarðarinnar í þágu samfélagsstarfsemi en þær ekki orðið að veruleika.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert