„Að mínu mati kemst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að lánaskilmálar Íbúðalánasjóðs í þessu máli hafi ekki verið í samræmi við lög um neytendalán.“ Þetta sagði Jónas Fr. Jónsson í samtali við mbl.is en hann var lögmaður í öðru þeirra mála sem fór fyrir Hæstarétt í dag um uppgreiðslugjald ÍLS.
„Ég trúi því ekki að lánastofnun sé stætt stætt á því að innheimta gjald af neytendum sem stangast á við lög um neytendalán og er ekki kveðið á um samningnum um hvernig eigi að reikna út.“
Hæstiréttur segir héraðsdóminn réttilega hafa komist að þeirri niðurstöðu að veðbréfið sem Íbúðalánasjóður gaf út ekki hafi verið verið í samræmi við neytendalög. ÍL-sjóður hefði átt að tilgreina hvernig gjaldið væri reiknað.
Hæstiréttur vísaði málinu þó aftur í hérað með vísan til þess að héraðsdómurinn hefði ekki verið nægjanlega skýr og rökstuddur.
Sú grein sem Íbúðalánasjóður gætti þess ekki að fylgja kvað á um að tilgreina skyldi hvernig uppgreiðslugjald sé reiknað og hvenær slíkur kostnaður félli til. Í ákvæðinu var þó ekki mælt fyrir um afleiðingar þess ef þess ef slíkt væri ekki tilgreint.
Hæstiréttur sagði héraðsdóm hafa átt að taka rökstudda afstöðu til þess hvort og þá á hvaða grundvelli sá ágalli leiddi til þess að ráðstöfunin hefði verið ógild milli aðila.