Forsetinn óð ofan í slímið

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, hikaði ekki við að leita …
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, hikaði ekki við að leita umslagið uppi ofan í slíminu. Ljósmynd/RÚV

Sögur – verðlaunahátíð barnanna var haldin í fjórða sinn í gærkvöld. Þar verðlauna börn á aldrinum 6-12 ára það menningarefni sem þeim finnst hafa staðið upp úr á árinu auk þess sem sögur, leikrit, lög og handrit barna hljóta verðlaun.

„Hátíðin er sögð skemmtilegasta verðlaunahátíð landsins en þar tíðkast að sprauta slími á verðlaunahafa haldi þeir of langa þakkarræðu. Fjölmargir verðlaunahafar fengu að finna fyrir því,“ segir í fréttatilkynningu RÚV.

Ljósmynd/RÚV

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, veitti verðlaun í flokki smásagna en þar hlutu þau Ásgeir Atli Rúnarsson og Sigríður Þóra Gabríelsdóttir verðlaun. Umslagið með nafni sigurvegaranna var falið í rauðu slími en forsetinn gerði sér lítið fyrir og óð ofan í sullið.

Ljósmynd/RÚV

Sjónvarpskonan Eva Laufey Hermannsdóttir var valin sjónvarpskona ársins fyrir þátt sinn Blindur bakstur en þátturinn hlaut einnig verðlaun sem besti fjölskylduþáttur ársins. 

Ljósmynd/RÚV

Daði og Gagnamagnið hlutu verðlaun fyrir lag sitt 10 Years auk þess sem Daði var valinn flytjandi ársins. Jón Jónsson og Einar Lövdahl hlutu verðlaun fyrir texta lagsins Ef ástin er hrein. 

Þórhallur Sigurðsson – Laddi hlaut heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til barnamenningar. 

Verðlaunahafar ársins: 

Lag ársins: 10 Years – Daði & Gagnmagnið.

Lagatexti ársins: Ef ástin er hrein – Jón Jónsson og Einar Lövdahl.

Tónlistarflytjandi ársins: Daði Freyr.

Barna- og unglingasjónvarpsþáttur ársins: Krakkaskaupið – RÚV.

Fjölskyldusjónvarpsþáttur ársins: Blindur bakstur – Stöð 2.

Sjónvarpsstjarna ársins: Eva Laufey Kjaran.

Leiksýning ársins: Kardemommubærinn – Þjóðleikhúsið.

Leikari/leikkona ársins: Ræningjarnir – Kardemonnubærinn – Hallgrímur Ólafsson, Oddur Júlíusson og Sverrir Þór Sverrisson.

Bók ársins: Orri óstöðvandi, bókin hennar Möggu Messi – Bjarni Fritzson.

Þýdd bók ársins: Dagbók Kidda klaufa, Snjóstríðið – Jeff Kinney – Þýðing Helgi Jónsson.

Smásögur ársins: Ævintýravíddin – Ásgeir Atli Rúnarsson. Soffía frænka – Sigríður Þóra Gabríelsdóttir.

Leikrit ársins: Álfrún álfkona – Oktavía Gunnarsdóttir, Undarlega eikartréð – Bergrós Níelsdóttir og Kolfinna Stefánsdóttir.

Stuttmyndir ársins: Hvít spor – Ari Jökull Óskarsson, Kristinn Logi Ragnarsson, Sigurður Arnar Hjálmarsson og Þór Gunnlaugsson, Björgunarleiðangurinn – Úlfhildur Júlía Stephensen og Dúna Steinunn Þorgeirsdóttir og Heimsókn hjá ömmu og afa – Katrín Rós Harðardóttir.

Tónlist ársins: Nú sé ég allt – Gíta Guðrún Hannesdóttir, Norðurljósin – Aníta Lind Arnþórsdóttir og Urður Eir Baldursdóttir, Vonin er sterk – Birnir Eiðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert