Njáll Trausti efstur og Kristján Þór neðstur

Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins mun leiða lista flokksins í …
Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins mun leiða lista flokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi kosningar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tillaga að framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi var samþykkt á fundi kjördæmisráðs í Mývatnssveit í dag. Sex efstu sæti listans eru skipuð af frambjóðendum í prófkjöri flokksins sem fram fór 29. maí síðastliðinn. 

Efstur á listanum er Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður og í öðru sæti er Berglind Ósk Guðmundsdóttir lögfræðingur. 

Sjálfstæðisflokkurinn skipar nú tvö þingsæti í kjördæminu, það gera fyrrnefndur Njáll Trausti og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Kristján gaf ekki kost á sér í nýafstöðnu prófkjöri flokksins í kjördæminu og skipar hann nú heiðurssæti listans.

Framboðslistinn í heild sinni:

1. Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður, Akureyri
2. Berglind Ósk Guðmundsdóttir lögfræðingur, Akureyri
3. Berglind Harpa Svavarsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður byggðaráðs, Egilsstöðum
4. Ragnar Sigurðsson bæjarfulltrúi, Reyðarfirði
5. Gunnar Hnefill Örlygsson framkvæmdamaður, Húsavík
6. Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir háskólanemi, Ólafsfirði
7. Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir, sjálfstæður atvinnurekandi, Siglufirði
8. Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri, Akureyri
9. Ásta Arnbjörg Pétursdóttir, bóndi og fjölskyldufræðingur, Eyjafjarðarsveit
10. Einar Freyr Guðmundsson menntaskólanemi, Egilsstöðum
11. Helgi Ólafsson rafvirkjameistari, Raufarhöfn
12. Freydís Anna Ingvarsdóttir, sjúkraliði og bóndi, Aðaldal
13. Róbert Ingi Tómasson framleiðslustjóri, Seyðisfirði
14. Guðný Margrét Bjarnadóttir, kennari og skíðaþjálfari, Eskifirði
15. Jens Garðar Helgason framkvæmdastjóri, Eskifirði
16. Kristín Halldórsdóttir rekstrarstjóri, Akureyri
17. Stefán Magnússon bóndi, Hörgársveit
18. Guðrún Ása Sigurðardóttir leikskólastarfsmaður, Fáskrúðsfirði
19. Arnbjörg Sveinsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, Seyðisfirði
20. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Akureyri

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert