Landsliðið í póker komið í úrslitakeppni HM

AFP

Íslenska landsliðið í póker er komið í úrslitakeppni HM 2021. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Landslið Íslands í póker tók þátt í sínu fyrsta alþjóðlega móti í gær, laugardaginn 19. júní, en um var að ræða undankeppni fyrir heimsmeistaramótið í match-poker, eða „keppnis póker“ sem ráðgert er að fara muni fram í lok nóvember 2021. Match poker er sérstakt afbrigði af hugaríþróttinni póker sem þróað hefur verið af International Federation of Match Poker (IFMP) og byggir á svipaðri hugmyndafræði og keppni í bridge þar sem hvert lið spilar sömu hendur úr sömu stöðu og árangur liða byggir ekki að neinu leyti á heppni heldur eingöngu frammistöðu liðsins.  

Í undankeppninni fyrir HM keppa 6 manna lið í 6 liða riðlum og eru spilaðar fjórar u.þ.b. klukkutíma umferðir og fer sigurliðið í hverjum riðli beint í úrslitakeppnina sem fram fer í nóvember.  Hin 5 liðin eru síðan dregin í umspilsriðla þar sem þau fá annan möguleika á að spila sig inn í úrslitakeppnina. 

Íslenska liðið átti í höggi við lið frá Noregi, Makedóníu, Ítalíu, Króatíu og Eistlandi í þessari fyrstu viðureign sinni og liðið okkar gerði sér lítið fyrir og vann öruggan sigur í riðlinum.

Íslenska liðið sem keppti í gær skipuðu eftirfarandi: 

  • Daníel Pétur Axelsson
  • Gunnar Árnason
  • Egill Þorsteinsson 
  • Inga Guðbjartsdóttir
  • Magnús Valur Böðvarsson
  • Sævar Ingi Sævarsson.

Í landsliðshópnum sem valinn var af landsliðsnefnd Pókersambands Íslands fyrir þetta verkefni eru einnig:

  • Einar Þór Einarsson
  • Garðar Geir Hauksson
  • Halldór Már Sverrisson
  • Kristjana Guðjónsdóttir

Liðsstjóri liðsins og verkefnisstjóri er formaður PSÍ, Már Wardum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert