Þórdís sigraði, Haraldur í 2. sæti

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Kristinn Magnússon

Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sigraði í prófkjöri flokksins í Norðvesturkjördæmi. Haraldur Benediktsson, oddviti flokksins í kjördæminu, varð í öðru sæti. Þetta kemur fram í lokatölum sem lesnar voru upp fyrir skömmu. 

Atkvæði í prófkjörinu greiddu 2.289 og gild atkvæði voru 2.232. Þau skiptust þannig: 

1. Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, 1.347 at­kvæði í fyrsta sæti.
2. Har­ald­ur Bene­dikts­son, 1.061 at­kvæði í 1.-2. sæti.
3. Teit­ur Björn Ein­ars­son, 1.190 at­kvæði í 1.-3. sæti.
4. Sig­ríður Elín Sig­urðardótt­ir, 879 at­kvæði í 1.-4. sæti.

Þórdís hlaut 60% atkvæða í 1. sæti en Haraldur 35%. Bæði sóttust eftir 1. sætinu. Af heildaratkvæðum fékk Þórdís 85%, Teitur Björn, sem hafnaði í 3. sæti, fékk 62% og Haraldur fékk 61%. 

Í fyrstu tölum í kvöld var Teitur Björn í 2. sæti en Haraldur í því 3. Þetta snerist við í öðrum tölum og í lokatölum var Haraldur enn í 2. sæti og munaði þá töluverðu á honum og Teiti Birni. Haraldur endaði með 1.061 atkvæði í 2. sæti en Teitur Björn fékk 849 atkvæði. 

Sjálfstæðisflokkurinn er með tvo þingmenn í Norðvesturkjördæmi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert