Banna Norðurflugi að lenda við gosstöðvarnar

Frá eldgosinu í Geldingadölum sem er á landi Hrauns. Landið …
Frá eldgosinu í Geldingadölum sem er á landi Hrauns. Landið er í einkaeigu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sýslumaðurinn á Suðurnesjum setti í gær lögbann við því að þyrlufyrirtækið Norðurflug haldi áfram að lenda þyrlum sínum í landi Hrauns, sem eldgosið á Reykjanesskaga er á, án samþykkis landeigenda. 

Fréttablaðið greinir frá þessu og kemur þar fram að Norðurflug hafi boðið upp á þyrluferðir að gosinu frá því í byrjun mars. 

Í fréttinni er rætt við lögmann landeigenda sem segir að lögbannið hafi verið lagt á vegna þess að ekki megi lenda flugförum inni á eignarlandi nema með samþykki landeigenda. 

„Það er enginn að amast við frjálsri för al­mennings sem nýtur verndar í náttúru­verndar­lögum. Þetta mál lýtur ein­göngu að þyrlunum. Ef menn eru með þyrlu geta þeir á­fram flogið yfir en til að lenda þarf sam­þykki land­eig­enda,“ segir lögmaðurinn, Óskar Sigurðsson, í samtali við Fréttablaðið.

Nú hafa landeigendur viku til þess að höfða mál fyrir héraðsdómi til staðfestingar lögbanninu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert