Hætt að styðjast við sjö ára gamla gjaldskrá

Ekki verður lengur stuðst við gjaldskrána frá árinu 2014 líkt …
Ekki verður lengur stuðst við gjaldskrána frá árinu 2014 líkt og hingað til. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur undirritað nýjan rammasamning milli Sjúkratrygginga Íslands og tannlækna um nauðsynlegar tannlækna um nauðsynlegar tannlækningar vegna alvarlegra meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma.

Í stað endurgreiðslugjaldskrár sem hefur verið í gildi frá árinu 2014 hefur nú verið samið um lækna um föst verð sem hækkuð verða tvisvar á ári. Samningurinn gildir frá 15. júlí 2021 til og með 30. september 2022.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Ljósmynd/ Stjórnarráðið

Greiðsluþátttaka hefur farið minnkandi

Í fréttatilkynningu ráðuneytisins kemur fram að það hafi legið lengi fyrir að fólk með alvarlegan sértækan tannvanda njóti ekki jafnræðis í samanburði við aðra hópa þegar kemur að greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands í kostnaði vegna tannlækninga.

Gjaldskráin sem tekið hefur verið mið af við endurgreiðslu til þessara einstaklinga hefur ekki verið uppfærð frá árinu 2014. Það hefur orðið til þess að greiðsluþátttaka sjúkratrygginga hefur verið sífellt minnkandi hluti af kostnaði sjúkratryggðra frá árinu 2014.

Samningurinn tekur til nauðsynlegra tannlækninga en ekki til tannréttinga. Gildir hann fyrir sjúkratryggða og aðeins um aðgerðir sem framkvæmdar eru af löggiltum tannlæknum vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma.

Áætlað er að samningurinn muni kosta ríkið 90 milljónir fyrir árið 2021 og 180 milljónir fyrir árið 2022.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert