Tímamót í byggingu á nýjum Landspítala

Frá framkvæmdunum við nýjan Landspítala í dag.
Frá framkvæmdunum við nýjan Landspítala í dag.

Tímamót urðu í byggingu á nýjum Landspítala í dag þegar fyrsta veggjasteypa á nýjum meðferðarkjarna var steypt. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá NLSH, sem sér um umsjón og stýringu byggingar nýs Landspítala.

Að sögn Ólafs Birgissonar hjá NLSH er um að ræða útvegg í kjallara á móts við Barnaspítala Hringsins. Í vegghlutann fóru um 70 rúmmetrar af steypu.

Frá framkvæmdunum við nýjan Landspítala í dag.
Frá framkvæmdunum við nýjan Landspítala í dag.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert