Engin verðlaunaafhending á Rey Cup

Mótið hefur gengið gríðarlega vel að sögn Gunnhildar Ásmundsdóttur, framkvæmdastjóra …
Mótið hefur gengið gríðarlega vel að sögn Gunnhildar Ásmundsdóttur, framkvæmdastjóra mótsins. Unnur Karen

Engin fleiri smit hafa greinst á Rey Cup-fótboltamótinu síðan tvö lið voru send í sóttkví eftir að keppandi greindist smitaður á fimmtudag. Vegna nýrra sóttvarnareglna sem taka gildi á miðnætti verður engin verðlaunaafhending í ár. 

Verðlaunaafhending með sama sniði og í fyrra

Síðasti dagur mótsins er á morgun en Gunnhildur Ásmundsdóttir, framkvæmdastjóri mótsins, segir nýjar sóttvarnarreglur ekki hafa mikil áhrif á framgang síðasta dags þess.

„Verðlaunaafhendingin raskast aðeins þannig að hún verður með sama hætti og í fyrra. Því verður engin eiginleg athöfn heldur verða verðlaunin afhent í lok leiks,“ segir Gunnhildur. Hún segir mótið annars hafa gengið gríðarlega vel, sérstaklega í gær og í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert