Tveir starfsmenn og einn sjúklingur með Covid-19

Fjórir eru inniliggjandi á Landspítala vegna Covid-19.
Fjórir eru inniliggjandi á Landspítala vegna Covid-19. mbl.is/Ómar Óskarsson

Tveir starfsmenn Landspítala og einn inniliggjandi sjúklingur greindust smitaðir af kórónuveirunni í gær. Í kjölfarið fór af stað umfangsmikil rakning sem leiddi til þess að tveir sjúklingar og níu starfsmenn voru settir í sóttkví A og 11 starfsmenn í vinnusóttkví C.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá viðbragðsstjórn og farsóttarnefnd Landspítala. 

Uppákomur af þessu tagi, þ.e. að smit greinist óvænt inni í starfseminni eru verulegt áhyggjuefni nú þegar veiran hefur náð mikilli útbreiðslu og tugir smitaðra eru utan sóttkvíar við greiningu,“ segir í tilkynningunni. 

Þar er brýnt fyrir starfsfólki að það skuli fara í skimun ef það finnur fyrir einkennum. 

Fjórir eru nú inniliggjandi á Landspítala veikir af Covid-19. 461 er í eftirliti á Covid-göngudeild, þar af 41 barn. Níu starfsmenn eru í einangrun, 15 í sóttkví A og í vinnusóttkví eru nú 242. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert