Umferðarteppa vegna áreksturs í Hveragerði

Löng röð hefur myndast í Kömbunum.
Löng röð hefur myndast í Kömbunum.

Mikil umferðarteppa er á Suðurlandsvegi vegna þriggja bíla áreksturs sem varð í Hveragerði. Röðin nær upp á Kambabrún, að sögn sjónarvottar, og að hringtorginu sem keyrt er í gegnum þegar komið er til Hveragerðis.

Vísir ræddi við lögregluna á Suðurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá þeim er vegurinn ekki lokaður en umferð hefur tafist töluvert. Ekki urðu alvarleg slys á fólki. 

Annar árekstur varð í gær, þá sjö bíla árekstur í Kömbunum. 

Lögreglubílar og sjúkrabílar eru á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert