40 manns sem voru í flugvélinni smitaðir

Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ómar Óskarsson

40 manns, sem komu til landsins í sömu flugvél frá grísku eyjunni Krít í síðustu viku, hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni. Hjördís Guðmundsdóttir samskiptastjóri almannavarna staðfestir þetta í skriflegu svari við fyrirspurn mbl.is.

Í vélinni voru útskriftarnemendur frá Flensborgarskólanum en að minnsta kosti 30 þeirra smituðust. Ekki er vitað hversu margir hinna 10 sem nú hafa greinst voru í útskriftarhópnum, en með þeim í flugvélinni til Íslands voru einnig einstaklingar sem tengdust ekki hópnum.

Í samtali við mbl.is í gær sagðist skóla­meist­ari Flens­borg­ar­skól­ans þekkja til máls­ins þótt ferðin hafi ekki verið á veg­um skól­ans. Flest­ir nem­end­ur ferðar­inn­ar út­skrifuðust í vor.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert