Play flýgur ekki með próflausa farþega til Íslands

Þota Play í flugtaki.
Þota Play í flugtaki. mbl.is/Unnur Karen

Flugfélagið Play mun ekki fljúga með farþega til Íslands sem ekki geta framvísað vottorði um neikvætt kórónuveirupróf við innritun.

Frá þessu greinir félagið í tilkynningu og er tekið fram að þetta fyrirkomulag taki gildi á morgun, fimmtudaginn 29. júlí.

Ákvörðunin er sögð tekin með öryggi farþega og áhafna að leiðarljósi. Hún sé í samræmi við reglugerð heilbrigðisyfirvalda sem tók gildi í gær, sem kveði á um að farþegar þurfi að verða sér úti um vottorð um neikvætt próf áður en haldið er til Íslands.

„Play mun bóka þá farþega sem ekki geta framvísað neikvæðu Covid-19-prófi í næsta flug félagsins frá sama áfangastað þeim að kostnaðarlausu, enda framvísi þeir þá neikvæðu prófi,“ segir í tilkynningunni.

„Með þessari tilhögun er Play ekki að bera brigður á rétt Íslendinga til að snúa til síns heima heldur þurfa þeir, sem ekki uppfylla reglur stjórnvalda, að sæta tímabundinni röskun í ljósi aðstæðna.“

„Kemur ekki til greina“

Ákvörðunin sé enn fremur tekin í samræmi við skilmála félagsins, þar sem meðal annars sé kveðið á um heimild þess til að neita að fljúga með farþega, sé það nauðsynlegt til að framfylgja lögum, reglugerðum eða tilmælum stjórnvalda eða til að tryggja öryggi annarra.

Jafnframt sé það mat Play að ef flugrekandi framfylgi ekki reglum stjórnvalda, með því að hleypa fólki sem ekki framvísi Covid-19-prófi á flugvelli um borð í flug til landsins, missi reglurnar marks.

„Það er skylda okkar að tryggja öryggi farþega og áhafna og það kemur ekki til greina að Play hleypi fólki um borð án þess að reyna að tryggja að það sé ekki með Covid-19. Þetta er tímabundin ráðstöfun í þágu öryggis,“ er haft eftir Birgi Jónssyni, forstjóra Play.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert