145 kórónuveirusmit hafa greinst innanlands eftir sýnatöku gærdagsins. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is. Þá greindust tvö virk smit á landamærunum. Aldrei hafa jafn mörg smit greinst á einum sólarhring frá því að faraldurinn hófst hér á landi.
Af þeim sem greindust innanlands í gær voru 47 í sóttkví við greiningu eða 32,41%.
Alls eru nú í 1.213 í einangrun og 2.429 í sóttkví.
101 smit greindist við einkennasýnatöku í gær og 44 við sóttkvíar- og handahófsskimanir. Af þeim sem greindust í gær eru 97 fullbólusettir og 38 óbólusettir. Bólusetning er hafin hjá fimm. Þeir tveir sem greindust á landamærunum eru báðir óbólusettir.
Mikill fjöldi sýna hefur verið tekinn síðustu daga og er ekki útilokað að fleiri smit eigi eftir að greinast eftir sýnatöku gærdagsins. Hafi fleiri smit greinst í gær koma þau fram í uppfærðum tölum á morgun.
Í gær voru tekin 2.609 sýni við einkennasýnatöku. 532 sýni voru tekin á landamærunum og 1.551 sýni var tekið við sóttkvíar- og handahófsskimanir. Fjöldi sýna sem tekin voru í gær er þannig minni en dagana á undan.
Í fyrradag höfðu 112 smit greinst þegar tölur voru uppfærðar. Nú hafa tölurnar verið uppfærðar að nýju og greindust alls 124 smit í fyrradag.
Fréttin hefur verið uppfærð.