Í gær voru 33 heimilismenn og tveir starfsmenn hjúkrunarheimilisins Áss skimaðir fyrir kórónuveirunni eftir að starfsmaður greindist með veiruna fyrr í vikunni. Öll sýnin reyndust neikvæð.
Fram kemur í tilkynningu frá Grundarheimilunum að áfram verði lokað fyrir heimsóknir á Ás.
Tveir heimilismenn Grundar sem greindust með veiruna fyrr í vikunni eftir að hafa smitast á fimmtudaginn í síðustu viku eru enn einkennalausir. Viðkomandi einstaklingar eru áfram í einangrun og líðan þeirra góð miðað við aðstæður.