Rafmagn er komið aftur á í Bláskógabyggð. Rafmagn sló út vegna eldinga frá Efri-Reykjum í Biskupstungum að Geysi. Viðgerðir stóðu yfir þar til í morgun.
Skipta varð um spenna sem urðu fyrir eldingum samkvæmt RARIK á Suðurlandi. Skipt var um síðasta spenninn um klukkan átta.
Alls komu milli áttatíu og níutíu eldingar fram í gær á eldingamælum Veðurstofunnar.