Síðasta myndin úr myndavél Johns Snorra

Myndin sem um ræðir.
Myndin sem um ræðir. Elia Saikaly

Fjall­göngu­maðurinn Elia Saika­ly birti í dag ramma úr síðasta myndbandinu sem tekið var á GoPro-mynda­vél Johns Snorra. 

Tækjabúnaður Johns Snorra fannst í gær, en búnaðurinn mun geta fært hald­bæra sönn­un fyr­ir því að John Snorri og Ali hafi náð toppi K2 en lát­ist á leiðinni niður. Sajid Sa­dp­ara hef­ur áður sagt að faðir hans hafi, ásamt John Snorra, náð á topp­inn. 

Ramminn sem Saikaly birti í dag er tekinn niður á við og sýnir fót klæddan gulum hlífðarfatnaði og fjallgönguskó. Þá virðist glitta í fingur sem klæddir eru svörtum vettlingum. 

Svo virðist sem annað myndefni úr vélinni hafi eyðilagst. Saikaly segir að skoða þurfi hvert smáatriði ítarlega, t.a.m. skipti miklu máli hvernig reipið sem sést á myndinni sé á litinn. 

Hann segir að allt bendi til þess að mennirnir hafi verið á niðurleið þegar þeir létust. John Snorri var aftastur, í mestri hæð og skammt fyrir neðan hann var Ali Sadpara. Juan Pablo Mohr fannst talsverð neðar, nær búðum fjögur. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert