Hafa ekki afskipti af bílum á nagladekkjum

Ljósmyndari mbl.is tók þessa mynd í umferðinni í morgun.
Ljósmyndari mbl.is tók þessa mynd í umferðinni í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að fyrirspurnir hafi borist hvort lögreglan muni hafa afskipti af bifreiðum sem er á nagladekkjum. Að sögn lögreglu verður það ekki gert í ljósi aðstæðna, en ökumenn hafa orðið varir við hálku á götum borgarinnar. 

Þetta kemur fram í færslu sem lögreglan birti á Facebook. 

Hún hvetur alla vegfarendur til að sýna aðgát og fara varlega. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert