Guðlaugur Þór ávarpaði allsherjarþing SÞ

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, talaði fyrir aðgerðum í loftslagsmálum, jafnari dreifingu bóluefna og mikilvægi mannréttinda og alþjóðalaga fyrir hagsæld og framþróun ríkja í ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í dag.

Þingið fer í þetta sinn fram sem blanda af fjarfundum og beinni þátttöku vegna Covid-19, að því er segir í tilkynningu en Guðlaugur Þór ávarpaði þingið af skjá síðdegis að íslenskum tíma.

Í ræðu sinni hvatti Guðlaugur Þór til aukinnar samstöðu um áskoranir samtímans. Hann sagði loftslagsbreytingar, yfirstandandi heimsfaraldur og vaxandi spennu í alþjóðsamskiptum gera kröfu um aukið traust og samstarf, ekki síst á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.

Tryggja þyrfti jafnari dreifingu bóluefna og færa samfélög til meiri sjálfbærni í kjölfar heimsfaraldursins í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. 

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í morgun.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í morgun. AFP

Guðlaugur Þór sagði brýnt að standa við Parísarsamkomulagið og reifaði áherslur og stefnu Íslands, bæði aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda innanlands og vaxandi stuðning við loftslagsaðgerðir í þróunarsamvinnu.

Ísland væri tilbúið að vinna með öðrum ríkjum að orkuskiptum, sérstaklega í tengslum við nýtingu jarðhita. Umhverfisvernd og auðlindanýting voru einnig rauður þráður í ræðunni, sérstaklega málefni hafsins. Þar hefði Ísland beitt sér fyrir aukinni samvinnu á grundvelli hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna og eflt svæðisbundna samvinnu, meðal annars gegn plastmengun á vettvangi Norðurskautsráðsins, samhliða því að vinna að alþjóðasamningum.

Úrbætur í mannréttinda- og jafnréttismálum

Ráðherrann brýndi ríki til að stuðla að úrbótum í mannréttinda- og jafnréttismálum, sem skiluðu sér í bættum samfélögum og aukinni velmegun, þar sem allir hefðu tækifæri til að leggja sitt af mörkum.

„Ef við viljum stuðla að framþróun og umbótum, þá þurfum við að auka virðingu fyrir mannréttindum, frelsi og jafnrétti, sem eru hornsteinar farsælla samfélaga. Fjárfestingar í umbótum, friði og mannréttindi eru á endanum hagkvæmari og bera meiri ávöxt en að fást við hryllilegar afleiðingar fátæktar, stríðsátaka og óréttlætis“ sagði hann í ræðunni.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Einnig vék Guðlaugur Þór að helstu átaka- og spennusvæðum heimsins og lýsti yfir áhyggjum af stöðu mála í Afganistan, sérstaklega aðför að réttindum kvenna og mannréttindabrotum.

Að endingu lagði ráðherra áherslu á að ríki stæðu saman að því að efla og styrkja starf Sameinuðu þjóðanna til að gera þeim betur fært að takast á við tækifæri og áskoranir framtíðarinnar. „Með von og vilja að vopni, og með því að standa við sameiginlegar skuldbindingar okkar, getum við mætt áskorunum og staðið við fyrirheit stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna svo varðveita megi frið og tryggja mannréttindi og þróun. Framtíð okkar er undir,“ sagði Guðlaugur Þór.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert