Vegaframkvæmdir fyrirhugaðar á morgun

Framkvæmdirnar fyrirhuguðu á Vesturlandsvegi.
Framkvæmdirnar fyrirhuguðu á Vesturlandsvegi. Kort/Vegagerðin

Vegagerðin stefnir á morgun, þriðjudag, á að fræsa frárein á Vesturlandsvegi frá N1 á Ártúnshöfða og upp að rampi sem liggur upp á Höfðabakka. 

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá klukkan 13-15.

Einnig er á morgun stefnt á að fræsa ramp frá Reykjanesbraut til norðurs og upp á Miklubraut til austurs. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá klukkan 9:30-14.

Framkvæmdirnar fyrirhuguðu frá Reykjanesbraut að Miklubraut.
Framkvæmdirnar fyrirhuguðu frá Reykjanesbraut að Miklubraut. Kort/Vegagerðin

Vegfarendur eru beðnir að virða merkingar og lokanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki við vinnu mjög nálægt akstursbrautum, að því er segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert