Allt að 8 stiga hiti í dag

Dálítil rigning verður syðst á landinu.
Dálítil rigning verður syðst á landinu. Kort/mbl.is

Spáð er norðaustan 5 til 13 metrum á sekúndu í dag, skýjuðu veðri og dálítilli rigningu syðst.

Hægari vindur verður og stöku él á norðaustanverðu landinu.

Hiti verður á bilinu 0 til 8 stig, mildast sunnan heiða.

Á morgun verða austan 5 til 10 metrar á sekúndu en 10-15 við ströndina.

Víða verður bjartviðri norðan- og vestanlands en stöku skúrir eða él á Suðaustur- og Austurlandi. Vaxandi austanátt verður og rigning sunnantil annað kvöld.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert