Veita 36 milljónir í styrki á sviði samgöngumála

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. mbl.is/Arnþór Birkisson

Samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytið hefur veitt sjö verkefnum á sviði samgöngumála styrki fyrir alls 36 milljónir króna.

Alls bárust níu styrkumsóknir upp á 76,9 milljónir króna en tvær þeirra hlutu ekki brautargengi.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Þar segir að eftirfarandi verkefni hafi hlotið styrk:

  • Snæfellsnes – samræmt leiðakerfi. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi fá styrk til að vinna úr tillögum um samræmt leiðakerfi á Snæfellsnesi eftir fýsileikakönnun sem gerð var árið 2020. Tilgangurinn er að efla samgöngur á Snæfellsnesi. Styrkurinn nemur 2.000.000 kr.
  • Úttekt á aðgengi biðstöðva á landsbyggðinni. Öryrkjabandalag Íslands hlýtur styrk til að framkvæma heildstætt mat á ástandi stoppistöðva Strætó á landsbyggðinni og setja fram tillögur að úrbótum. Styrkurinn nemur 2.000.000 kr.
  • Samfélagsleg nýsköpun. Samlegð farþega- og póstflutninga á Norðausturlandi. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra hlýtur styrk til að vinna að frekari greiningu á hindrunum og umhverfi í farþega- og póstflutningum á Norðausturlandi. Þarfagreining hefur þegar verið gerð ásamt því að ræða við hagaðila. Nú er stefnt að því að vinna frekari greiningu ásamt því leita hagkvæmari lausna og fyrirmyndir sóttar til annarra landa. Styrkurinn nemur 3.000.000 kr.
  • Loftbrúin – hvernig reynist hún? Austurbrú ses. hlýtur styrk til að gera viðhorfskönnun meðal notenda Loftbrúar, sem hófst fyrir ári síðan, og að meta notagildi og hlutverk hennar út frá henni. Styrkurinn nemur 7.000.000 kr.
  • Borgarfjörður – samþætt leiðakerfi. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi fá styrki til að hefja tilraunaverkefni sem tryggir að íbúar dreifbýlis í Borgarbyggð geti nýtt ferðir skólabíla til að sækja vinnu eða þjónustu. Styrkur nemur 12.000.000 kr. sem deilist á tvö ár.
  • Nýtt kerfi almenningssamgangna í Fjarðabyggð. Fjarðabyggð hlýtur styrk til að þróa nýtt leiðakerfi almenningssamgangna, sem tók gildi 1. sept. sl. Verkefnið er 16 mánaða tilraunaverkefni en markmiðið er að gera Fjarðabyggð að einu atvinnu- og skólasóknarsvæði. Styrkurinn nemur 8.000.000 kr.
  • Heilsueflandi almenningssamgöngur í Langanesbyggð. Langanesbyggð hlýtur styrk til að koma á almenningssamgöngum milli Bakkafjarðar og Þórshafnar og tvinna saman heildræna lýðheilsustefnu og notendamiðaðan frístunda- og tómstundaakstur. Byggð við Bakkaflóa hefur átt undir högg að sækja og verkefnið er liður í átaki gegn þeirri þróun. Styrkurinn nemur 1.200.000 kr.

Í valnefndinni sátu þau Elín Gróa Karlsdóttir, Ferðamálastofu, Magnús Karel Hannesson, fyrrverandi sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, sem jafnframt er formaður nefndarinnar.

Með valnefndinni störfuðu Árni Freyr Stefánsson, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, og Sigríður K. Þorgrímsdóttir, sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar.

Skipun valnefndar og mat umsókna var í samræmi við reglur um úthlutun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024, eins og segir í áðurnefndri tilkynningu Stjórnarráðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert