Ása ráðin deildarstjóri lögfræðideildar Kópavogs

Ása Arnfríður Kristjánsdóttir.
Ása Arnfríður Kristjánsdóttir. Ljósmynd/Kópavogsbær

Ása Arnfríður Kristjánsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri lögfræðideildar Kópavogsbæjar. Alls bárust 23 umsóknir um stöðuna.

Ása hefur starfað hjá Kópavogsbæ frá árinu 2009, fyrst sem lögfræðingur hjá velferðarsviði en síðar á lögfræðideild bæjarins. Hún lauk prófi úr lagadeild Háskóla Íslands árið 2004 og öðlaðist málflutningsréttindi árið 2005. 

Hún starfaði áður sem lögfræðingur hjá Securitas og hjá DP-lögmönnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert