Hætta notkun bóluefnis Moderna á Íslandi

Sóttvarnalæknir hefur tekið ákvörðun um að bóluefni Moderna verði ekki notað hér á landi meðan frekari upplýsinga er aflað um öryggi bóluefnisins við örvunarbólusetningar. Er ákvörðunin tekin í ljósi þess að undanfarna daga hafa komið fram gögn frá Norðurlöndum um aukna tíðni hjartabólgu og gollurshússbólgu eftir bólusetningu með bóluefninu, umfram bólusetningu með bóluefni Pfizer/BioNTech. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef embættis landlæknis.

Bóluefni Moderna hefur undanfarna tvo mánuði nær eingöngu verið notað við örvunarbólusetningar eftir Janssen bóluefni og eftir tveggja skammta bólusetningar aldraðra og ónæmisbældra. Örfáir einstaklingar hafa fengið seinni skammt grunnbólusetningar sem hófst með Moderna.

Í Svíþjóð hefur notkun Moderna verið einskorðuð við einstaklinga fædda fyrir 1991. Í  Noregi og Danmörku hefur verið áréttað að mælt er með Pfizer bóluefni frekar en Moderna bóluefni fyrir 12–17 ára, en hér á landi hefur eingöngu verið mælt með bóluefni Pfizer við grunnbólusetningu 12–17 ára frá því að bólusetningar þessa aldurshóps hófust.

„Þar sem nægt framboð er af bóluefni Pfizer hér á landi fyrir bæði örvunarbólusetningar skilgreindra forgangshópa og grunnbólusetningar þeirra sem ekki hafa enn fengið bólusetningu hefur sóttvarnalæknir ákveðið að Moderna-bóluefni verði ekki notað hér á landi, meðan frekari upplýsinga er aflað um öryggi bóluefnis Moderna við örvunarbólusetningar,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert