Eurovisionsýning opnar á Húsavík

Frá Eurovisionsýningunni á Ja ja ding dong.
Frá Eurovisionsýningunni á Ja ja ding dong. Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson

Eurovisionsýning var opnuð á barnum Ja ja ding dong á Húsavík í dag með pompi og prakt. Barinn dregur nafn sitt af samnefndu lagi sem sló í gegn í Eurovision-myndinni góðu á streymisveitunni Netflix, Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga. 

Örlygur Hnefill Örlygsson, athafnamaður og hóteleigandi á Húsavík stendur fyrir sýningunni. 

Við opnunina söng Gréta Salóme, söngkona og Eurovisionfari, Húsavíkurlagið úr kvikmyndinni ásamt stúlknakórnum sem söng svo eftirminnilega með söngkonunni Molly í vor. 

Helstu Eurovision áhugamenn landsins voru á staðnum á borð við Felix Bergsson og Rúnar Gíslason. 

Örlygur Hnefill ásamt Rúnari Gíslasyni og Felix Bergssyni.
Örlygur Hnefill ásamt Rúnari Gíslasyni og Felix Bergssyni. Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
Stúlknakór Húsavíkur.
Stúlknakór Húsavíkur. Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
Gréta Salóme ásamt stúlkum uúr stúlknakórnum.
Gréta Salóme ásamt stúlkum uúr stúlknakórnum. Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert