Borgin greiðir 27 milljónir vegna endurbyggingar

Gamalt hús á nýjum grunni við Starhaga 1 í Reykjavík.
Gamalt hús á nýjum grunni við Starhaga 1 í Reykjavík. mbl.is/Árni Sæberg

Borgarráð samþykkti á fundi sínum nú á fimmtudag að veita heimild til þess að ganga frá uppgjöri um eignina Starhaga 1 sem áður var staðsett á Laugavegi 36.

Árið 2014 gerðu Reykjavíkurborg og Minjavernd samning um samvinnu við flutning, endurgerð og sölu hússins. Nú sjö árum síðar hefur húsinu verið komið fyrir á varanlegum stað á Starhaga 1 og það verið endurgert.

Hlutur borgarinnar 27 milljónir

Heildarkostnaður verkefnisins hljóðar upp á rétt tæplega tvö hundruð milljónir og er mismunurinn milli kostnaðar og söluverðs hússins rúmar fimmtíu milljónir. Heildarhlutur og kostnaður Reykjavíkurborgar í verkefninu er þá rúmar 27 milljónir. Eins og áður segir var samþykkt í borgarráði að klára uppgjör við Minjavernd vegna verkefnisins.

Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna lögðu fram bókun um málið. Þar segir meðal annars að „víðtæk samstaða“ hafi verið á sínum tíma um að endurgera húsið.

Slíkar framkvæmdir feli þó ávallt í sér óvissu sem „skýri það hvers vegna samið var um að deila hagnaði eða tapi eftir því hver niðurstaðan yrði“.

Gríðarhár kostnaður á hvern fermetra

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins en lögðu þó fram bókun. Þar var bent á að enn á ný væri viðgerðarkostnaður borgarinnar „gríðarlega hár“.

Fram kom einnig í bókuninni að kostnaðurinn væri vel á aðra milljón á hvern fermetra að meðtöldum lóðarkostnaði, sem væri mun hærri en kostnaður við nýbyggingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert