Úr hættustigi niður í óvissustig

Virkni í gígnum í Geldingadölum hefur legið niðri síðustu fjórar …
Virkni í gígnum í Geldingadölum hefur legið niðri síðustu fjórar vikur. mbl.is/Sigurður Bogi

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hefur ákveðið að lækka almannavarnastig vegna eldgoss í Geldingadölum úr hættustigi niður í óvissustig.

Fram kemur í tilkynningu, að virkni í gígnum í Geldingadölum hafi legið niðri síðustu fjórar vikur og óróamælingar hafi verið í samræmi við það. Skjálftavirkni jókst sunnan Keilis í byrjun október, en hefur gengið niður síðustu daga. 

„Enn er fylgst vel með svæðinu með tilliti til aukinnar skjálftavirkni, óróa og landbreytinga.  Áfram má búast við hættum á svæðinu og er fólki ráðlagt frá því að ganga á hraunbreiðunni eða reyna að nálgast gíginn. 

Þann 20. mars sl. var almannavarnastigið lækkað frá neyðarstigi niður á hættustig,“ segir í tilkynningu almannavarna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert