Jón hlýtur bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar

Jón Hjartarson og Dagur B. Eggertsson við athöfnina í dag.
Jón Hjartarson og Dagur B. Eggertsson við athöfnina í dag. Ljósmynd/Aðsend

Jón Hjartarson hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2021 fyrir handrit sitt að ljóðabókinni Troðningar. Bókin kemur í verslanir í dag en JPV útgáfa gefur út. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri veitti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða í dag.

Alls bárust 49 óbirt ljóðahandrit í samkeppnina í ár og voru þau send inn undir dulnefni. Aðeins var umslag með réttu nafni verðlaunahöfundar opnað. Reykjavíkurborg hefur veitt Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar frá árinu 1994 og hafa þau verið veitt fyrir ljóðahandrit eingöngu frá 2004. Reykjavík bókmenntaborg UNESCO hefur umsjón með verðlaununum.

Samið fjölda leikrita og bóka

Jón Jóhann Hjartarson er fæddur 20. janúar 1942 á Hellissandi. Hann útskrifaðist sem kennari frá Kennaraskóla Íslands 1965 og lauk leikaraprófi frá Leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur 1968. Jón var jafnframt við framhaldsnám í Berlín 1984.

Jón hefur samið fjölda leikrita bæði fyrir börn og fullorðna, auk barna- og unglingabóka. Fyrsta leikrit hans, Afmælisboðið, er frá 1969. Hann samdi leikgerð upp úr skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur, Mávahlátri, sem sett var upp hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1998. Hann hefur bæði leikstýrt verkum sínum og annarra hjá atvinnuleikhúsum og áhugaleikhópum. Nú síðast kom út ungmennabókin Auga í fjallinu sem Skrudda gaf út 2017.

Margbreytileikinn í því einfalda

Í dómnefnd sátu Sif Sigmarsdóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Eyþór Árnason.

„Troðningar eftir Jón Hjartarson er kraftmikið verk um hið óvænta í hinu augljósa, fegurðina í hversdagsleikanum og mikilfengleika þess smáa. Í bókinni fer Jón um víðan völl. En hvort sem yrkisefnið er náttúran, sagan eða samtíminn er sjónarhornið ávallt óvænt. Þekkt minni eru færð í nýjan búning. Kímnar hvunndagsmyndir eru dregnar upp innan um vísanir í stórskáldin. Hið hversdagslega verður ljóðrænt, hið háfleyga hversdagslegt.

Í ljóðum sínum sýnir Jón fram á að í lífinu leynist margbreytileikinn oft í því einfalda. Þann mótsagnakennda sannleika má heimfæra á verkið Troðninga. Í einföldum myndum sem settar eru saman af hugkvæmni, hlýju og kímni leynist svo miklu meira en virðist við fyrstu sýn,“ segir í umsögn dómnefndar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert