Yfir hálf milljón birkiplantna í jörð

Stund milli stríða. Glaðbeittir gróðursetningarmenn frá Gone West slaka á.
Stund milli stríða. Glaðbeittir gróðursetningarmenn frá Gone West slaka á. Ljósmynd/Ana Marija Marinov/Skógræktin

Starfsfólk verktakans Gone West gróðursetti hátt í hálfa milljón birkiplantna á Hekluskógasvæðinu og upp í Hrauneyjar í septembermánuði. Gone West er fyrirtæki sem vinnur að gróðursetningu trjáplantna í nokkrum löndum Evrópu. Alls voru gróðursettar 456.000 birkiplöntur í um 210 hektara svæði og gekk gróðursetning mjög vel, segir á heimasíðu Skóræktarinnar.

Annar verktaki, Guðjón Helgi Ólafsson, hefur undanfarið unnið, ásamt Einari Páli Vigfússyni, við að gróðursetja um 100 þúsund plöntur neðar á sama svæði. Í allt verður því yfir hálfri milljón birkiplantna komið í jörð á Hrauneyjasvæðinu áður en vetrar. Skógræktin hefur haft yfirumsjón með þessum verkefnum í samvinnu við Landgræðsluna.

Þeir reitir sem nú hefur verið gróðursett í eru hugsaðir sem fræbankar fyrir framtíðina, að birkið sái sér sjálft úr þeim yfir nærliggjandi svæði á næstu áratugum. Plönturnar koma flestar frá Sólskógum í Kjarnaskógi, en einnig frá Kvistabæ í Biskupstungum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert