Frá Sky Lagoon til Skyrlands

Snorri Freyr Hilmarsson hannaði sýninguna Skyrland sem er í nýja …
Snorri Freyr Hilmarsson hannaði sýninguna Skyrland sem er í nýja Mjólkurbúinu á Selfossi. Hann er með mörg járn í eldinum og hannaði m.a. útlit lónsins Sky Lagoon, leikmynd Dýrsins og margt fleira. mbl.is/Ásdís

Snorri Freyr Hilmarsson á að baki langan feril sem leikmyndahönnuður. Hann hefur hannað leikmyndir fyrir sjónvarp, kvikmyndir og fjölmörg leikrit. Snorri hefur einnig látið til sín taka við að hanna sýningar, en hann á heiðurinn af Skyrlandi sem var nýlega opnað í Mjólkurbúinu í nýja miðbæ Selfoss.

Útsýnið við eldhúsvaskinn

Vegna vinnu sinnar fyrir Torfusamtökin og grúskið í kringum gömul hús var Snorri fenginn til að gera uppkast að nýjum miðbæ á Selfossi.

„Þegar þetta var að komast af stað teiknaði ég skissur og konseptteikingar af þessu öllu og hvernig þetta gæti komið til með að líta út. Þær teikningar voru svo lagðar fram sem tillaga eða hugmynd en svo tóku Batteríið og Sigurður Einarsson arkitekt við og þetta hefur þróast mikið síðan ég var að fikta í þessu.“

Snorri var með í að skipuleggja nýjan miðbæ á Selfossi …
Snorri var með í að skipuleggja nýjan miðbæ á Selfossi og hefur nú hannað safnið Skyrland á neðstu hæð Mjólkurbúsins. mbl.is/Ásdís

Ertu kannski á móti nútímalegum húsum?

„Nei, alls ekki, og ég held að maður þurfi ekkert að velja á milli. Ég hef fyrst og fremst gaman af sögu; hún skiptir máli og gerir umhverfið okkar mannlegt. Um leið og við förum of geyst í að eyða henni tökum við í burtu hið mannlega,“ segir Snorri sem býr eins og fyrr segir í fallegu gömlu timburhúsi.

„Það eru um sex ár síðan við fluttum hingað á Eyrarbakka úr Reykjavík. Hér get ég sameinað heimili og vinnustofu. Á þessum tíma var hægt að velja úr húsum hér á Eyrarbakka. Ég mætti hingað með vini mínum, húsasmíðameistara, og við skoðuðum þrjú hús. Fyrsta húsið var eitthvað úr gjaldþroti og hann ráðlagði mér frá að kaupa það, annað húsið sagði hann mjög vel byggt og góð kaup, en þriðja húsið sagði hann ónýtt svo ég keypti það,“ segir hann og brosir.

Snorri hannaði þessa fallegu mjólkurkýr sem fær að njóta sín …
Snorri hannaði þessa fallegu mjólkurkýr sem fær að njóta sín vel innan um spegla og ljós. mbl.is/Ásdís

Af hverju keyptirðu ónýta húsið?

„Húsið og staðurinn. Maður sér hér út á haf, yfir túnin og kirkjuna. Ég sá að það var ekkert það ónýtt að það væri ekki hægt að laga það,“ segir Snorri og segir þau hafa þurft að endursmíða húsið mikið að utan og enn sé margt eftir innandyra. Snorri er sjálfur handlaginn og hefur gert heilmikið, meðal annars skipt um alla glugga.

„Það sem réð úrslitum var útsýnið við eldhúsvaskinn.“

Ein allsherjar innsetning

Við drífum okkur út í rokið og keyrum sem leið liggur á Selfoss að skoða herlegheitin. Nýi miðbærinn fellur svo vel inn í bæinn og Mjólkurbúið, það fallega hús, stendur þar á besta stað, enda eitt af lykilhúsum nýja miðbæjarins. Það var endurbyggt eftir gamla mjólkurbúshúsinu sem rifið var á sjöunda áratugnum.

Snorri, sem þekkti að vonum vel til skipulags gamla miðbæjarins, var fenginn til að hanna safn á neðstu hæð hússins sem segði sögu skyrsins.

„Staðurinn og staðarmenningin kallaði á þetta safn, en staðurinn byggist mikið í kringum mjólkuriðnaðinn og þá skyrið,“ segir Snorri og blaðamaður hefur á orði að Mjólkurbúið líti út fyrir að hafa alltaf verið þarna.

„Þetta er glænýtt hús, og það er hluti af því sem er svo skemmtilegt að þarna er verið að gera eitthvað sem er í raun alveg bannað að gera samkvæmt arkitektúr 101; það á ekki að byggja gamalt. En þarna eru tekin horfin hús frá Selfossi og víðar og prjónuð saman í þetta umhverfi sem er að myndast þarna,“ segir Snorri og úskýrir að aðeins sé búið að byggja einn þriðja af miðbænum og því heilmikið eftir.

Við hönnun Skyrlands leitaði Snorri aftur í söguna en einnig í þjóðsögurnar.
„Hugmyndaleitin byrjaði í samvinnu við Gagarín og fleiri en svo frestaðist aðeins skiplulagið. Þetta fór svo á flug, en safnið er ein allsherjar innsetning og á að vera skemmtilegt og forvitnilegt, og er að hluta gagnvirkt,“ segir hann.

Snorri vinnur fyrst skissur sem eru svo smíðaðar eftir hans …
Snorri vinnur fyrst skissur sem eru svo smíðaðar eftir hans teikningum.

„Við vildum hafa þetta upplýsandi án þess að kæfa fólk í upplýsingum. Sýningin á að vekja meiri áhuga heldur en að svara öllum tæknispurningum,“ segir hann og bendir á að við hliðina má finna Ísey Skyrbar.

„Hugmyndin er líka að fá hópa í skyrsmakk og leiðsögn um safnið.“

Hér er verið að smíða leikmynd fyrir Skyrland.
Hér er verið að smíða leikmynd fyrir Skyrland.

Heima er best

Nú er þín vinna við Skyrland búin, hvað er á döfinni?

„Það er verið að undirbúa bíómynd en það er algjört leyndó; ég segi ekkert,“ segir hann og hlær.

„Svo er verið að skoða ýmislegt í kringum lónið í Kópavogi, Sky Lagoon, en ég kom að því að hanna þar laugina og klettana ásamt mörgu góðu fólki,“ segir hann.

Í Sky Lagoon er náttúran manngerð, en Snorri hannaði þar …
Í Sky Lagoon er náttúran manngerð, en Snorri hannaði þar lónið og bergið ásamt fleira fólki. mbl.is/Eggert

„Það var mjög sérstakt verkefni, að hanna leikmyndir úr járnbentri steinsteypu sem eiga að standa um ókomna tíð. Þarna er algjörlega manngerð náttúra en fólk upplifir sig mjög sterkt í náttúrunni en fólk er ekki að pæla í því að þetta er ekki raunverulegt. Það sama má segja með miðbæinn á Selfossi, þú kemur inn í þetta umhverfi og ert ekkert að hugsa um að þetta séu ný hús,“ segir hann og segir fleira sé á döfinni.

„Ég er líka að hanna leikmynd fyrir barnaleikrit sem verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu eftir áramót, Umskiptinginn eftir Sigrúnu Eldjárn. Það er líka meiri vinna í kringum miðbæinn á Selfossi.“

Greinilegt er að verkefnin eru næg hjá Snorra.

Þú ferð kannski að fá tilboð frá Hollywood líka ef Dýrið vinnur Óskarinn?

Snorri hannaði leikmyndina fyrir kvikmyndina Dýrið en breyta þurfti húsinu …
Snorri hannaði leikmyndina fyrir kvikmyndina Dýrið en breyta þurfti húsinu mikið, enda hafði ekki verið búið þar í 20 ár.

„Já, það kom reyndar tilboð frá Hollywodd í fyrra en þá var verið að steypa upp þessa klettaveggi í Kópavogi þannig að ég varð að segja nei við því,“ segir hann og hlær.

„En kannski er bara heima best!“

Ítarlegt viðtal er við Snorra Frey í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 



Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert