Hugmyndir um fluglínubraut í Glerárgili

Áformaðar eru fimm fluglínubrautir yfir Glerá. Hér er farið á …
Áformaðar eru fimm fluglínubrautir yfir Glerá. Hér er farið á fluglínu yfir Varmá í Hveragerði, við Reykjafoss. mbl.is/Margrét Þóra Þórsdóttir

Jón Heiðar Rúnarsson og Aníta Hafdís Björnsdóttir hafa kynnt fyrir skipulagsráði á Akureyri hugmyndir sínar um að setja upp svonefndar fluglínubrautir, eða ziplínur, á svæði við Glerárgil á Akureyri. Ráðið tók jákvætt í erindið. Svæðið sem um ræðir er skammt neðan við brú við Þingvallastræti og til norðurs í átt að Háskólanum á Akureyri og hugmyndin gengur út á að setja upp alls fimm línur. Sviðsstjóra skipulagssviðs var falið að vinna málið áfram.

Aníta og Jón Heiðar áforma að setja upp fluglínubrautir yfir …
Aníta og Jón Heiðar áforma að setja upp fluglínubrautir yfir Glerá á Akureyri.

„Þetta er enn á byrjunarreit hjá okkur, við erum á hönnunar- og hugmyndastigi með þetta verkefni en munum halda okkar vinnu áfram,“ segir Jón Heiðar. Hann nefnir að hér á landi séu tvær tegundir af fluglínum í gangi. Annars vegar einnar línu braut þar sem farið er í einni bunu niður og hins vegar margra línu brautir eins og eru hjá Zipline Iceland í Vík í Mýrdal.

„Við erum í nánu samstarfi við vini okkar í Vík og stefnum á að setja upp braut í Glerárgili sem er svipuð og þar er,“ segir Jón Heiðar. „Í okkar hugmyndum er stefnt á að setja upp fimm línur sem krossa Glerána fram og til baka.“

Fræðandi göngutúrar á milli brauta

Leiðsögumenn munu tengja fólk við línuna og taka á móti því einnig við hinn endann á henni. Þá taka við stuttir göngutúrar á milli lína sem bjóða upp á möguleika á léttri fræðslu fyrir ferðamenn um nærumhverfið.

„Í okkar fyrstu hugmyndum er gert ráð fyrir að fyrsta lína byrji við göngubrúna sem liggur yfir Glerá við Þingvallastræti og sú síðasta endi um það bil 500 metrum neðar,“ segir hann. Lokahönnun og úttekt á brautinni verður unnin af erlendum sérfræðingum sem sérhæfa sig í brautum sem þessum.

Jón Heiðar segir að fluglínubraut af þessu tagi muni auka mjög möguleika til afþreyingar á Akureyri og yrði frábær viðbót við þá útivistarparadís sem Akureyri er.

„Þetta gefur fjölskyldum sem og einstaklingum einstakt tækifæri á að kynnast Glerárgilinu á nýjan máta og fellur frábærlega að því sem er í gangi þar nú þegar en á svæðinu er frisbígolfvöllur, hjólabrettagarður, göngustígar og hjólaleiðir,“ segir hann.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert