Raskanir á ferðum strætó og tilkynningakerfi bilað

Í tilkynningu frá Strætó segir að mjög tvísýnt er með …
Í tilkynningu frá Strætó segir að mjög tvísýnt er með ferðir á leið 57 það sem eftir lifir degi.

Töluverðar raskanir hafa verið hjá Strætó á landsbyggðinni í dag vegna hvassviðris. Á sama tíma liggur tilkynningarkerfi á heimasíðu Strætó niðri vegna bilunar og tilkynningar um frávik hafa því ekki birst þar.

Margar ferðir hafa fallið niður á leið 57, milli Reykjavíkur og Akureyrar, vegna hvassviðris á Kjalarnesi og við Blikdalsá. Í tilkynningu frá Strætó segir að mjög tvísýnt sé með ferðir á leiðinni það sem eftir er dags.

Einnig hafa verið einhverjar raskanir á ferðum á leið 55, milli Fjarðar og Keflavíkurflugvallar.

Í tilkynningu eru farþegar þessara leiða hvattir til að fylgjast með twittersíðu Strætó, þar sem öll frávik dagsins verða tilkynnt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert